Enski boltinn

Aston Villa með flottan útisigur.

Stefán Árni Pálsson skrifar
Libor Kozák
Libor Kozák
Aston Villa vann flottan sigur á Norwich á útivelli,1-0, og er liðið því komið með tíu stig í deildinni og situr í 10. sæti.

Robert Snodgrass klúðraði víti fyrir Norwich í upphafi leiksins og gátu Kanarífuglarnir byrjað vel.

Libor Kozák, leikmaður Aston Villa, skoraði síðan eina mark leiksins eftir hálftímaleik og gestirnir með flottan sigur.

Norwich er í 16. sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×