Enski boltinn

Micah Richards að hugsa sér til hreyfings

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
mynd/nordic photos/getty
Enski varnarmaðurinn Micah Richards er farinn að líta í kringum sig og veltir fyrir sér að yfirgefa enska úrvalsdeildarliðið Manchester City vegna fárra tækifæra á leiktíðinni. Hann segist þó helst vilja leika áfram á Etihad leikvanginum.

Hinn 25 ára gamli varnarmaður hefur aðeins tekið þátt í sex leikjum City á leiktíðinni. Engu að síður hefur City boðið honum nýjan samning sem hann segir að ekki komi til greina að skrifa undir fyrr en í fyrsta lagi í lok tímabilsins.

„Ég hef rætt við City og liðið vill framlengja samninginn minn en ég hef sagt þeim að ég vilji fyrst sjá hversu marga ég leiki ég spila á leiktíðinni,“ sagði Richards.

„Ég vil ekki fara frá City en eins og staðan er þá verður maður að skoða hvert ferillinn sé að fara, spila ég nóg?

„Það mun ég skoða í lok tímabilsins. Vonandi mun ég hafa spilað nóg en í augnablikinu spila ég ekki nóg til að komast í eins góða leikæfingu og ég get.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×