Enski boltinn

Wenger ósáttur við gullboltann

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
mynd/nordic photos/getty
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segist ekki vilja sjá neinn vinna gullboltann (ballon d'Or) því hann sé á móti einstaklingsverðlaunum í liðsíþróttinni fótbolta.

Knattspyrnumaður ársins verður valinn í janúar þegar gullboltinn verður afhentur. Miklar vangaveltur eru víða um hver eigi hampa boltanum eftirsótta sem Lionel Messi hefur unnið fjögur síðustu árin.

Helst er talað um að Cristiano Ronaldo eða Franck Ribery eigi að vinna verðlaunin af Messi en Wenger vill ekki sjá þetta.

„Hver vil ég að vinni? Enginn. Ég er á móti einstaklingsverðlaunum. Þetta ýtir undir eintaklingsdýrkunina sem er andstætt grunngildum íþróttarinnar,“ sagði Wenger við Telefoot.

„Ég vinn eins óður maður gegn verðlaununum, þau skemma fótboltann. Ómeðvitað fer leikmaðurinn að hugsa meira um eigin frammistöðu heldur en liðsins.“

Kosningarfresturinn fyrir gullboltann rann út 29. nóvember en verðlaunaafhendingin verður haldin 13. janúar í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×