Enski boltinn

Chelsea marði sigur gegn botnliðinu

Hazard fagnar í kvöld.
Hazard fagnar í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea lenti í kröppum dansi gegn Sunderland í kvöld en hafði að lokum 3-4 sigur.

Botnliðið byrjaði með látum og komst yfir snemma leiks. Þeir voru reyndar enn að fagna markinu er markavélin Frank Lampard jafnaði fyrir Chelsea.

Eden Hazard kom svo Chelsea yfir fyrir hlé en fyrrum leikmaður Man. Utd, John O'Shea, jafnaði fyrir Sunderland í upphafi seinni hálfleiks. Hörkuleikur.

Hazard var ekki hættur því hann kom Chelsea aftur yfir tæpum hálftíma fyrir leikslok. Philip Barsdsley tók þá öll völd á vellinum. Skoraði sjálfsmark og svo mark fyrir Sunderland.

Sjálfsmarkið varð aftur á móti þess valdandi að Sunderland tapaði leiknum.

Chelsea í þriðja sæti deildarinnar en Sunderland sem fyrr á botninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×