Fundur milli Ísraels og Palestínu í dag Þorgils Jónsson skrifar 29. júlí 2013 09:38 Tzipi Livni, aðalsamningamaður Ísraela, segist nokkuð vongóð varðandi viðræður við Palestínumenn í dag. Hún er hér með John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem hefur unnið hörðum höndum að því að koma á fundum milli deiluaðila. NordicPhotos/AFP
Fulltrúar frá Ísrael og Palestínu hittast í Washington í Bandaríkjunum í dag, en þar verður rætt um áframhald á friðarviðræðum milli aðilanna með það að markmiði að koma á sjálfstæðu ríki Palestínu. Pattstaða hefur verið í viðræðunum síðustu fimm ár síðan viðræðum var síðast slitið, en samningamenn segjast nokkuð vongóð um framhaldið, þrátt fyrir málið sé afar flókið og mörg ljón séu enn í veginum. Tzipi Livni, dómsmálaráðherra og aðalsamningamaður Ísraela, sagðist stefna til fundarins í dag „með varkárni, en þó vongóð.“ Hanan Ashrawi, talskona Palestínumanna sagði að fyrirhugaðar viðræður færu fram undir afar krefjandi kringumstæðum og taldi meðal annars til í því sambandi pólitískan klofning í röðum Palestínumanna og harðlínuafstöðu Benjamíns Netanjahús, forsætisráherra Ísraels. „En ég held að við skiljum öll hversu aðkallandi málið er,“ segir hún. „Ef við vinnum ekki hratt og ákveði gæti allt fallið um sjálft sig.“ Ísraelar liðkuðu fyrir viðræðunum í dag með því að tilkynna um að 104 palestínskum föngum, sem meðal annars voru dæmdir fyrir morð á ísraelskum borgurum, verði sleppt úr haldi á næstunni. Lausn þeirra er þó tengd framvindu friðarviðræðnanna. Samhliða þessari ákvörðun samþykkti ríkisstjórn Ísraels í gær að öll skipti á landsvæðum sem hugsanlegir friðarsamningar gætu falið í sér, séu háð samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landtaka Ísraela á hernumdum svæðum á Vesturbakka Jórdan-ár, er einn helsti ásteytingarsteinninn í samskiptum milli Ísraels og Palestínu.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Sjá meira