Perez: Mourinho tekur við Chelsea Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 2. júní 2013 13:32 Mynd/Nordic PHotos/Getty
Florentino Perez forseti Real Madrid segir það klárt að Jose Mourinho muni taka við enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea öðru sinni í sumar en Mourinho er hættur sem knattspyrnustjóri Real Madrid. Mourinho kvaddi Real Madrid með 4-2 sigri á Osasuna í gær en hann þurfti að horfa á eftir titlinum til Barcelona í vetur. Mourinho hefur lengi verið orðaður við endurkomu á Stamford Bridge en hann stýrði liðinu frá 2004 til 2007 með góðum árangri. Hann vann deildina tvisvar með Chelsea, enska bikarinn einu sinni og deildarbikarinn tvisvar. Eftir að Mourinho fór frá Chelsea vann hann þrennuna með Inter 2010, ítalska bikarinn, ítölsku deildina og Meistaradeild Evrópu. Hann gerði Real Madrid að Spánarmeisturum 2012. Ricardo Carvalho sem lék undir stjórn Mourinho hjá Chelsea og Real Madrid líst vel á að Mourinho fari aftur til Chelsea. „Liðinu hefur gengið vel en það er mikilvægt fyrir liðið að bæta sig. Þetta félag skiptir mig miklu máli, ég var mjög ánægður þarna og ég vona að liðið vinni titla. Liðið vann Evrópudeildina en það er deildin sem skiptir öllu máli,“ sagði Carvalho. „Hann vinnur deildina á öðru eða þriðja ári en hann getur líka gert það á fyrsta ári. Hann gerði það þegar hann kom 2004 og getur gert það aftur,“ sagði Carvalho.Enska knattspyrnusambandið biðst afsökunarEnska knattspyrnusambandið birti frétt í gær á heimasíðu sinni þess efnis að Mourinho væri tekinn við Chelsea. Fréttin hefur verið tekin út og hefur enska knattspyrnusambandið beðist afsökunar á fréttinni. „Þetta voru mistök. Við tókum fréttina út um leið og við vorum látin vita af fréttinni og við töluðum við Chelsea og báðum félagið afsökunar,“ sagði talsmaður sambandsins. „Við höfum enga fyrirfram vitneskju af neinum viðræðum eða tilkynningum.“
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira