„Tasha öskraði á mig að koma boltanum í helvítis markið“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2013 21:11 Louise Fors og Katrín skoruðu mörkin mikilvægu fyrir framan 2000 áhorfendur í Liverpool. Nordicphotos/Getty „
Þetta er frábært. Við lögðum hart að okkur og það er góð tilfinning að ná markmiðum sínum,“ sagði Katrín Ómarsdóttir, leikmaður Englandsmeistara Liverpool, í viðtali við BBC. Katrín og félagar tryggðu sér titilinn með 2-0 sigri á Bristol City í hreinum úrslitaleik. Liverpool dugði þó jafntefli en gerði gott betur. „Við reyndum að nálgast leikinn eins og hvern annan þótt þetta hefði í raun verið eins og bikarúrslitaleikur,“ sagði landsliðskonan sem skoraði síðara mark Liverpool í leiknum. Markið skoraði hún með föstu skoti eftir undirbúning Natöshu Dowie. „Hún öskraði á mig að koma boltanum í helvítis markið,“ sagði Katrín. Tilfinningin hafi verið góð að skora gegn Bristol en það gerði hún einnig í fyrri leik liðanna. Markið var eitt það glæsilegasta í deildinni í ágústmánuði. „Ég hef ekki skorað mörg mörk en einhverra hluta vegna skora ég gegn Bristol,“ sagði miðjumaðurinn. Árangur Liverpool er athyglisverður því liðið hafnaði í neðsta sæti deildarinnar í fyrra en því efsta í ár. „Margar okkar voru ekki hér í fyrra. Því hefur þetta ár farið í að kynnast, setja markmið og gera okkar besta. Það gerðum við og það er góð tilfinning að vinna titilinn,“ sagði Katrín. Titlinum yrði fagnað með því að skella sér út á lífið þar sem mjólk og safi yrði sötraður. Því næst tekur við hlé frá æfingum en liðið kemur aftur saman í janúar.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í eftri hlutanum Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Íslenski boltinn KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira
Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í eftri hlutanum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í eftri hlutanum Íslenski boltinn