Betri þjónusta í Boltavaktinni 2. mars 2013 13:15
Boltavakt Vísis er nú með betri og ítarlegri leiklýsingar frá knattspyrnuleikjum víða um Evrópu. Undanfarin ár hefur Boltavakt Vísis þjónað áhugamönnum um knattspyrnu og handbolta en blaðamenn Vísis og Fréttablaðsins hafa séð um að lýsa ótal leikjum hérlendis frá árinu 2005. Leikjum allra stærstu deilda Evrópu hefur einnig verið gerð skil í Boltavaktinni og nú hefur sú þjónusta verið aukin. Eins og sést í meðfylgjandi leiklýsingu hér neðst í greininni, frá leik Getafe og Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni, er aukningin umtalsverð. Áður einskorðaðist lýsingin við mörk, spjöld og skiptingar en nú hefur marktilraunum, vörðum skotum, hornspyrnum og rangstöðum verið bætt við. Aðrar mikilvægar upplýsingar, svo sem vítaspyrnudómar og þegar leikmenn bjarga á marklínu, eru einnig nýjar viðbætur við leiklýsingarnar. Blaðamenn Vísis bæta svo við textalýsingu á völdum leikjum, oftast í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Miðstöð Boltavaktarinnar verður áfram með sama horfi en þar gefst lesendum Vísis tækifæri á að fylgjast með því helsta sem gerist í öllum leikjum viðkomandi deildar samtímis. Frekari viðbætur eru væntanlegar og munum við kynna þær þegar þær verða innleiddar í Boltavaktina. Boltavaktin lýsir leikjum í efstu tveimur deildunum í Englandi og efstu deildum Þýskalands, Ítalíu, Spánar, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Hún fylgist líka með leikjum Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildinni sem og stórmótunum í knattspyrnu, HM og EM, ásamt undankeppnum þeirra í Evrópu. Hér á Íslandi lýsum við öllum leikjum í Pepsi-deild karla, N1-deild karla, landsleikjum í handbolta og fótbolta, og völdum leikjum í öðrum deildum og keppnum. Það má alltaf nálgast Boltavaktina á forsíðu íþróttavefs Vísis. Þar eru yfirlit yfir nýjustu úrslitin, næstu leiki og stöðu í viðkomandi deildum. Þar eru einnig hlekkir á leikjayfirlit tímabilsins alls sem og á Miðstöðina í viðkomandi deild, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Fótbolti Mest lesið Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Formúla 1 Rodri genginn í raðir Barcelona Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Fótbolti Fleiri fréttir Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enn á gjörgæslu eftir að hafa misst fótanna í sundlaug Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Sjá meira