Brian Kidd stýrði Manchester City til sigurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2013 18:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Sergio Agüero tryggði Manchester City 2-0 sigur á Reading í kvöld í fyrsta leik liðsins eftir að félagið rak knattspyrnustjóra sinn Roberto Mancini. Brian Kidd stýrði liði City í þessum leik því David Platt, aðstoðarmaður Mancini, sagði upp störfum fyrr um daginn. Manchester City tapaði 0-1 fyrir Wigan í úrslitaleik enska bikarsins um síðustu helgi sem var jafnframt síðasti leikur liðsins undir stjórn Roberto Mancini. Leikurinn skipti litlu máli fyrir liðin því Reading var fallið úr deildinni en Manchester City tryggði sér með þessum sigri annað sætið í deildinni. Stuðningsmenn sungu Roberto Mancini söngva allan leikinn og voru greinilega ekki sáttir við að maðurinn sem kom með fyrstu titlana til félagsins frá því á sjöunda áratugnum var látinn taka pokann sinn. Sergio Agüero skoraði fyrsta mark leiksins á 40. mínútu eftir laglegan undirbúning frá James Milner og David Silva. Edin Džeko innsiglaði síðan sigurinn á 88. mínútu eftir stoðsendingu frá David Silva. Manchester City er tíu stigum á eftir nágrönnum sínum í Manchester United en jafnframt sex stigum á undan Chelsea sem er í 3. sætinu.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Sport Fullnaðarsigur Arnars Íslenski boltinn Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Enski boltinn Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Golf Í beinni: ÍA - Breiðablik | Tími Skagamanna að renna út Íslenski boltinn Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Fótbolti Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Körfubolti Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Fótbolti Yankees heiðruðu Charlie Kirk Sport Fleiri fréttir Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Fertugur Fabianski beðinn um að mæta aftur Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda Ange tekinn við Forest: „Hefur sýnt og sannað að hann geti unnið titla“ Liverpool hyggst fá Guéhi frítt Postecoglou að taka við Forest Nuno rekinn frá Forest Segir að treyja Man United sé þung byrði Man City og úrvalsdeildin náð sáttum varðandi auglýsingasamninga „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Gyökeres vitni í réttarhöldum Segir að Liverpool-menn muni sennilega aldrei jafna sig á fráfalli Jota Orðin dýrust í sögu kvennaboltans Fantasýn: „Ekki kaupa Isak núna“ Levy var neyddur til að hætta Maðurinn sem keyrði á Liverpool stuðningsfólkið neitar sök Ein sú besta gæti snúið aftur eftir 20 mánaða fjarveru Gæti orðið fyrsti músliminn til að spila fyrir enska landsliðið Levy hættur hjá Tottenham eftir 25 ár í starfi Mo Salah var ekki skemmt vegna færslu um fyrrum félaga Setti nýtt heimsmet í Liverpool treyjum Chiesa og Tel ekki valdir í Meistaradeild en Dowman gæti slegið met Liverpool eyddi meira en öll sádi-arabíska deildin til samans Rauðu djöflarnir horfa til framtíðar með nýjum markverði Sunnudagsmessan: Fylltu í eyðurnar Guardiola fer ótroðnar slóðir með Donnarumma milli stanganna Sjá meira