Enski boltinn

Zaha verður mögulega lánaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
David Moyes, stjóri Manchester United, hefur ekki útilokað að lána sóknarmanninn Wilfried Zaha til annars félags í Englandi á nýju ári.

Zaha hefur lítið fengi að spila með United og aðeins komið við sögu í fjórum leikjum síðan hann var keyptur frá Crystal Palace fyrir fimmtán milljónir punda.

„Ég hef ekki skoðað málið ítarlega enn. En ég sagði Wilf að ef ég teldi hann þurfa að spila meira þá myndi ég íhuga það,“ sagði Moyes.

„En svo gætu meiðsli og annað slíkt komið til sögunnar og þá kæmi það ekki til greina. Það er mikil samkeppni um leikmenn sem standa honum framar eins og er. Í sannleika sagt þá hefur enginn hringt enn út af honum og ég er sáttur við þá stöðu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×