Enski boltinn

Viðbrögð við höfuðmeiðslum tekin til endurskoðunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar ætla að fá hóp lækna til þess að endurskoða reglur er varða höfuðmeiðsli leikmanna í deildinni. Guardian greinir frá þessu.

Hugo Lloris, markvörður Tottenham, fékk vænt höfuðhögg eftir árekstur við Romelu Lukaku, framherja Everton, í leik liðanna í deildinni á laugardag. Frakkinn stóð áfram vaktina í markinu þrátt fyrir meiðslin og var ákvörðun þjálfarateymisins gagnrýnd.

Lloris missti meðvitund um tíma en þjálfarateymi Tottenham segir að Frakkinn hafi fengið grænt ljós frá læknateyminu að halda leik áfram. Samtök atvinnuknattspyrnumanna í Englandi hafa krafist þess að ákvörðunin verði framvegis ekki í höndum læknateymisins heldur sé liðum skylt að skipta leikmönnum af velli verði þeir fyrir svo alvarlegum höfuðmeiðslum.

Fjölmargir hafa gagnrýnt Andre Villas-Boas, stjóra Tottenham, fyrir ákvörðunina. Meðal þeirra er Fifpro, alþjóðleg leikmannasamtök, sem fullyrða að Portúgalinn og teymi hans hafi brugðist þegar kom að því að gæta að heilsu markvarðarins.

Portúgalinn hrósaði hugrekki markvarðarins í leikslok. Áreksturinn átti sér stað á 78. mínútu og spilaði Lloris því um stundarfjórðung eftir höfuðhöggið.

Hér að ofan má sjá innslag úr kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem meðal annars má sjá viðtal við Andre Villas-Boas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×