Arsenal sýndi mátt sinn í sigri á Liverpool - fimm stiga forskot Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2013 17:00 Mynd/NordicPhotos/Getty
Arsenal er komið með fimm stiga forskot í ensku úrvalsdeildinni eftir sannfærandi 2-0 sigur á Liverpool á Emirates-leikvanginum í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Liverpool-menn áttu litla möguleika á móti frábæru Arsenal-liði sem sýndi svo sannarlega mátt sinn í þessum leik. Santi Cazorla og Aaron Ramsey skoruðu mörk Arsenal sem hefur nú 25 stig eða fimm stigum meira en Chelsea og Liverpool sem töpuðu bæði leikjum sínum í dag. Arsenal hefur unnið átta af síðustu níu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og liðið sýndi með frammistöðu sinni í kvöld að Arsenal er líklegt til þess að enda langa bið eftir titli á þessu tímabili. Santi Cazorla kom Arsenal í 1-0 á 19. mínútu þegar hann fylgdi á eftir eigin skalla í stöngina. Cazorla afgreiddi frákastið glæsilega í markið. Aaron Ramsey bætti við öðru marki á 59. mínútu með laglegu langskoti eftir að hafa fengið boltann frá Mesut Özil. Þetta var tíunda mark Aaron Ramsey á leiktíðinni. Liverpool-liðið lifnaði aðeins við undir lokin og mark frá Liverpool lá í loftinu á lokakafla leiksins en Arsenal-vörnin hélt út og hélt markinu sínu hreinu. Arsenal ógnaði einnig í hvert sinn sem liðið komst inn á síðasta þriðjunginn með sínu stórskemmtilega stutta spili sem sprengir upp hvaða vörn sem er. Mörk Arsenal hefðu því getað orðið mun fleiri.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina Sport Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira