Enski boltinn

Markvörður Stoke skoraði eftir 14 sekúndur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ryan Shawcross fagnar hér Asmir Begovic.
Ryan Shawcross fagnar hér Asmir Begovic. Mynd/NordicPhotos/Getty
Asmir Begovic, markvörður Stoke City, skoraði í dag eitt ótrúlegasta mark sem hefur verið skorað í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Það var ekki bara að markvörður hafi skorað í bestu deild í heimi heldur skoraði Begovic markið sitt eftir aðeins fjórtán sekúndna leik þegar Stoke tók á móti Southampton á heimavelli.

Begovic nýtti sér rokið á Britannia-leikvanginum en hann sparkaði þarna boltanum fram völlinn frá eigin vítateig. Miðverðir Southampton létu boltann fara og hann fór í jörðina og skoppaði yfir Artur Boruc í markinu

Artur Boruc var aðeins búinn að fá á sig þrjú mörk fyrir þennan leik og Southampton hefur verið hrósað fyrir frábæran varnarleik. Það átti því enginn von á þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×