Enski boltinn

David Moyes: Þetta hefur alltaf verið mitt lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, var ánægður eftir 3-1 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. United hefur þar með unnið tvo deildarleiki í röð og fjóra leiki í röð í öllum keppnum.

„Þetta hefur alltaf verið mitt lið síðan að ég tók við af Sir Alex Ferguson. Það tekur alltaf sinn tíma að koma sér fyrir og það hefur verið þannig hjá okkur," sagði David Moyes við BBc en skoski stjórinn hefur mátt þola talsverða gagnrýni að undanförnu.

„Það má samt ekki gleyma því að lið Manchester United eru þekkt fyrir að byrja rólega en bæta síðan sinn leik eftir því sem líður á tímabilið," sagði Moyes.

„Leikmennirnir hafa vanið sig á góða hluti hjá fyrrum stjóra liðsins og þeir eru með rétta sigurhugarfarið sem ég verð vitni af á hverjum degi," sagði Moyes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×