Chelsea jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 14:30 Mynd/NordicPhotos/Getty
Afar umdeild vítaspyrna í uppbótartíma kom í veg fyrir að West Bromwich Albion yrði fyrsta liðið til að vinna Chelsea á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í tíð Jose Mourinho. Chelsea og West Bromwich Albion gerðu 2-2 jafntefli á Brúnni í dag en gestirnir voru að vonum svekktir í leikslok enda hársbreidd frá sögulegum sigri. Ramires fiskaði vítið umdeilda og Eden Hazard skoraði jöfnunarmarkið af miklu öryggi á sjöttu mínútu í uppbótartíma. Vítaspyrnudómurinn er og verður mjög umdeildur. Chelsea var í mikilli stórsókn allt frá því að WBA-menn komust yir á 68. mínútu en það leit út fyrir að vörnin hjá lærisveinum Steve Clarke ætlaði að halda. Mourinho var búinn að stýra Chelsea í 65 heimaleikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að tapa. Chelsea hafði unnið 51 þeirra og gert 14 jafntefli. WBA hafði ennfremur ekki unnið Chelsea á útivelli í efstu deild síðan 30. september 1978. Það varð hinsvegar ekkert að sögulegum úrslitum þökk sé umræddum dómi Andre Marriner sem verður á milli tannanna á áhugafólki um ensku úrvalsdeildina langt fram í næstu viku. Samuel Eto'o hefur verið duglegur að skora hrægammamörk að undanförnu og hann bætti einu við þegar hann kom Chelsea í 1-0 á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Eto'o fyldi þá eftir þegar skot Eden Hazard var varið. Shane Long jafnaði metin á 61. mínútu með kraftmiklum skalla eftir að Petr Čech varði skalla Gareth McAuley beint upp í loftið. Long var frekastur á frákastið og skallaði boltann í markið. Petr Čech átti að gera betur þegar hann hleypti í gegn skoti frá Stephane Sessegnon á 68. mínútu. Chelsea menn var í stórsókn á lokakafla leiksins og settu mikla pressu á gestina og fengu síðan vítið á síðustu andatökum leiksins.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Leik lokið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Íslenski boltinn Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Handbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira