Giggs: Manchester United er ekki litla liðið í þessum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 22:15 Ryan Giggs fagnar marki á móti Arsenal. Mynd/AFP
Ryan Giggs, spilandi aðstoðarþjálfari Manchester United og sigursælasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, er ekki á því að United sé litla liðið í stórleiknum á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Arsenal er í efsta sæti deildarinnar og átta stigum meira en Manchester United sem er bara í áttunda sætinu eftir fyrstu tíu umferðir tímabilsins. Ryan Giggs á möguleika á því að spila sinn fimmtugasta leik á móti Arsenal en þessi 39 ára gamli leikmaður var spurður út í leikinn á Sky Sports. „Man United á móti Arsenal á Old Trafford og við erum litla liðið. Ég get ekki verið sammála því. Ég geri mér samt alveg grein fyrir því að Arsenal er heitasta liðið og að þetta verður erfiður leikur," sagði Ryan Giggs. „Við vitum alveg út í hvernig leik við erum að fara. Þeir munu vera með boltann og hafa marga hæfileikaríka leikmenn í formi. Það er aðeins meira stál í Arsenal-liðinu á þessu tímabili og þeir eru ekki að fá mörg mörk á sig. Arsenal hefur alltaf haft gæðin til að spila flottan fótbolta en nú er liðið að sýna meiri stöðugleika," sagði Giggs. „Það er mikið sjálfstraust í Arsenal-liðinu en á sama tíma eru við að komast á skrið. Það er hinsvegar alltaf stórleikur þegar Arsenal mætir á Old Trafford. Það eru líka allir sammála um mikilvægi þessa leik eftir þessa góðu byrjun Arsenal," sagði Giggs.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Enski boltinn Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Fleiri fréttir Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Sjá meira