Ég þurfti mína tvo daga eftir landsleikina Stefán Árni Pálsson skrifar 19. október 2013 08:00 Vinnan tekur við hjá Aroni Einari í dag þegar Cardiff mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Fyrirliðinn er kominn niður á jörðina. nordicphotos/getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands og leikmaður Cardiff, var í eldlínunni í vikunni þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu skráði sig í sögubækurnar er liðið komst áfram í umspil um laust sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári. Leikmenn landsliðsins þurfa aftur á móti að komast fljótlega niður á jörðina en þeir hefja margir hverjir aftur leik með félagsliðum sínum um helgina. „Það er auðvitað ákveðið afrek að komast í umspilið en núna tekur við hið hefðbundna líf og ég þarf strax að fara einbeita mér að félagsliði mínu,“ segir Aron Einar, en Cardiff mætir í dag Chelsea á Stamford Bridge klukkan tvö í dag.Fljótur niður á jörðina „Það kemur bara í ljós á mánudaginn hvaða liði við mætum í umspilinu en í bili þurfa menn bara að koma sér niður á jörðina og hugsa um vinnuna sína. Ég passaði mig að fagna ekki of mikið eftir leikinn gegn Norðmönnum á þriðjudaginn þar sem ég er mjög líklega að fara hlaupa í 90 mínútur á laugardaginn.“ Ísland hafnaði í öðru sæti í sínum riðli í undankeppni HM og verður því í pottinum þegar dregið verður um það hvaða lið mætast í umspilinu. Ísland getur mætt Portúgal, Úkraínu, Króatíu eða Grikklandi. „Maður eru smá lemstraður eftir þessa landsleikjatörn og ég þurfti mína tvö daga til að jafna mig en ég er klár í slaginn. Það verður gaman að koma í fyrsta skipti á Stamford Bridge og spila við Chelsea.“Getum unnið alla á góðum degi Cardiff vann frábæran sigur á Manchester City í ágúst og þar sýndi liðið að það er til alls líklegt í ensku úrvalsdeildinni. Aron Einar skoraði fyrsta mark Cardiff í þeim leik og í leiðinni fyrsta mark félagsins í sögunni í ensku úrvalsdeildinni. „Við getum klárlega staðið í öllum liðum í þessari deild, sérstaklega ef við spilum eins og lagt er fyrir okkur. Maður kemst oft langt á baráttunni og við erum búnir að undirbúa okkur vel fyrir leikinn gegn Chelsea. Það er vissulega ekki auðvelt að spila gegn Chelsea á útivelli og ætlast til þess að maður nái í einhver stig. Leikmenn smærri liðanna í úrvalsdeildinni þurfa að mæta í alla leiki með það fyrir augum að allir vinni hver fyrir annan en það er í þeim liðum sem liðsheildin skiptir hvað mestu máli. Ef maður á að vera raunsær þarf Chelsea að eiga heldur slakan leik til þess að við náum einhverjum út úr þessum leik.“
Enski boltinn Mest lesið Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Enski boltinn Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Enski boltinn Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Íslenski boltinn Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Sjá meira