Enski boltinn

Sendingin yfir Ermasundið að reynast vel

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gouffran og Remy fagna marki um helgina. Nordicphotos/Getty
Gouffran og Remy fagna marki um helgina. Nordicphotos/Getty
Yoan Gouffran og Moussa Sissoko skoruðu mörk Newcastle í 2-1 sigrinum á West Brom í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Þeir eru báðir Frakkar.

Innrás Frakka í Newcastle undir stjórn Alans Pardew hefur ekki farið framhjá neinum. Fimm Frakkar voru í byrjunarliði liðsins í gær og þrír sátu á bekknum.

Newcastle hefur skorað 19 mörk í deildinni það sem af er leiktíð og hafa 18 markanna verið skoruð af Frökkum. Það svarar til 95% allra marka eða allra nema eins. Það mark skoraði Walesverjinn Paul Dummett.Þeir svörtu og hvítu hafa nú unnið fjóra leiki í röð og eru komnir í 5. sæti deildarinnar.

Aðeins hjá Lyon í Frakklandi hafa franskir leikmenn skorað fleiri mörk á leiktíðinni eða 20. 17 mörk hafa komið frá frönskum leikmönnum hjá Marseille og 16 hjá St Etienne.

Mörk Newcastle:

Loic Remy 8

Yoan Gouffran 4

Yohan Cabaye 2

Hatim Ben Arfa 2

Mathieu Debuchy 1

Moussa Sissoko 1

Paul Dummett 1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×