Enski boltinn

Leikmenn styðja Villas-Boas

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Moussa Dembele segir ekkert hæft í þeim staðhæfingum enskra fjölmiðla að Andre-Villas Boas hafi misst stuðning leikmanna sinna hjá Tottenham.

„Stjórinn hefur lagt mikið á sig og er sífellt að reyna að byggja upp sjálfstraust okkar,“ sagði miðjumaðurinn Dembele.

Tottenham tapaði fyrir Manchester City, 6-0, fyrir rúmri viku síðan en breska blaðið The Guardian hélt því fram eftir tapið að starf Villas-Boas héngi á bláþræði.

Liðið gerði svo 2-2 jafntefli við Manchester United um helgina og Villas-Boas gagnrýndi fjölmiðla fyrir neikvæða umfjöllun um hann.

„Öllum leikmönnum líkar vel við hann. Við viljum standa okkur vel fyrir hann og félagið. Knattspyrnustjórar verða ávallt gagnrýndir þegar illa gengur.“

„Við spiluðum vel um helgina og stóðum saman. Síðasta vika var sú versta á mínum ferli. Ég verð að hætta að velta henni fyrir mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×