Erlent

Líkið verður til sýnis framvegis

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Fjöldi fólks hefur komið til að votta Chavez virðingu sína.
Fjöldi fólks hefur komið til að votta Chavez virðingu sína. nordicphotos/AFP
Nicolas Maduro, sem nú gegnir forsetaembætti í Venesúela, segir að líkið af Hugo Chavez verði smurt og haft til sýnis um aldur og ævi.

Chavez lést á þriðjudag eftir erfiða baráttu við krabbamein. Efnt verður til forsetakosninga innan þrjátíu daga frá láti hans. Chavez hafði sjálfur óskað eftir því að Maduro yrði kosinn arftaki sinn.

Útför hans verður gerð í dag með mikilli viðhöfn og er reiknað með að leiðtogar meira en þrjátíu ríkja mæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×