Enski boltinn

Skoruðu eftir 12 sekúndur | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heyra mátti saumnál detta á Stamford Bridge í dag þegar Southampton tók forystuna gegn Chelsea eftir aðeins 12 sekúndur.

Gestirnir byrjuðu með boltann en virtust þó hafa tapað honum þegar Jay Rodriguez var, fyrir klaufagang Michael Essien, sloppinn einn í gegn. Leikurinn er í beinni textalýsingu á Vísi, smellið hér.

Framherjinn nýtti færið og gestirnir komnir yfir eftir aðeins 13 sekúndur. Markið er eitt það fljótasta í sögu deildarinnar.

Fljótustu mörkin

Ledley King skoraði fyrir Tottenham gegn Bradford árið 2000 eftir um 10 sekúndur.

Alan Shearer skoraði fyrir Newcastle gegn Man. City árið 2003 eftir 10,4 sekúndur.

Mark Viduka skoraði fyrir Leeds gegn Charlton árið 2001 eftir 11,1 sekúndur.

Christ Sutton og Dwight Yorke hafa einnig skorað mörk í ensku úrvalsdeildinni eftir um 13 sekúndna leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×