Enski boltinn

Cole og Cole skoruðu | Öruggt hjá Everton

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Norwich, West Ham og Everton unnu mikilvæga sigra í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Markalaust var í viðureign Aston Villa og Sunderland.

Everton 4-0 Stoke

Spánverjinn Gerard Deulofeu, lánsmaður frá Barcelona, kom Everton á bragðið undir lok fyrri hálfleiks gegn Stoke. Deulofeu ku vera næstyngsti Spánverjinn til að skora í ensku úrvalsdeildinni en kappinn er á nítjánda aldursári. Cesc Fabregas var 17 ára þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal.

Mark Seamus Colemann í upphafi síðari hálfleiks setti heimamenn í þægilega stöðu. Bryan Oviedo, fyrrum samherji Ragnars Sigurðssonar hjá FC Kaupmannahöfn, nýtti tækifærið í liði Everton í fjarveru Leighton Baines. Bakvörðurinn frá Kostaríka skoraði þriðja markið og Belginn Romelu Lukaku innsiglaði sigurinn með marki tólf mínútum fyrir leikslok.

Belginn hefur nú skorað átta mörk og lagt upp eitt í níu leikjum með Everton í deildinni. Frábær tölfræði hjá framherjanum stæðilega.

West Ham 3-0 Fulham

Varamennirnir og nafnarnir Carlton og Joe Cole komu af bekknum og tryggðu West Ham 3-0 sigur á Fulham í Lundúnaslag í Austur-London í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom miðjumaðurinn Mohamed Diamé West Ham yfir snemma í síðari hálfleiknum. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum og því til stuðnings átti Fulham ekki eitt skot í öllum leiknum sem hitti á markið.

Varamennirnir Carlton og Joe Cole skoruðu hvor sitt markið á síðustu tíu mínútum leiksins og tryggðu sætan sigur.

Norwich 1-0 Crystal Palace

Hart var barist á Carrow Road í Norwich þegar Tony Pulis mætti með lærisveina sína í heimsókn. Johan Elmander og Nathan Redmond áttu frábærar tilraunir snemma leiks en sláin og Julian Speroni, markvörður Palace, björguðu gestunum.

Gary Hooper, sem Norwich fékk frá Celtic í sumar, skoraði eina mark leiksins eftir hálftímaleik. Heimamenn spiluðu þá gestina sundur og saman, Elmander lagði boltann á Hooper sem renndi honum í opið markið.

Gestirnir komust næst því að jafna þegar Sebastian Bassong setti boltann rétt yfir eigið mark af stuttu færi eftir fyrirgjöf. Góður sigur heimamanna en staða Palace í botnbaráttunni erfið.

Aston Villa 0-0 Sunderland

Sunderland komst nær því að tryggja sér sigurinn í leiknum. Fabio Borini átti meðal annars skalla í slá. Liðin skiptu stigunum á milli sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×