Enski boltinn

Ramsey skoraði tvö í sigri á Aronslausu liði Cardiff | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aaron Ramsey heldur áfram að koma nafni sínu í fyrirsagnir netmiðla eftir tvö mörk skoruð í 3-0 útisigri Arsenal á Cardiff í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Jack Wilshere átti skot í slá Cardiff áður en tvær mínútur voru liðnar af leik liðanna í Wales í dag. Gestirnir frá Lundúnum voru sterkari aðilinn og komust yfir með skallamarki Aaron Ramsey eftir fyrirgjöf Mesut Özil.

Ramsey, sem er uppalinn hjá Cardiff, kaus að fagna markinu ekki af virðingu við sínum fyrri félaga. Hins vegar mátti sjá fjölmarga stuðningsmenn Cardiff fagna marki Walesverjans.

Aron Einar Gunnarsson sat á varamannabekk Cardiff og gat ekki hjálpað sínum mönnum sem þó börðust af krafti gegn toppliðinu. Ben Turner bjargaði á marklínu heimamanna snemma í síðari hálfleik.

Engu skipti þótt heimamenn skiptu Peter Odemwingie inn á um miðjan hálfleikinn. Arsenal bætti við tveimur mörkum áður en yfir lauk. Fyrst skoraði varamaðurinn Mathieu Flamini áður en Ramsey bætti við öðru marki sínu í viðbótartíma.

Arsenal hefur nú sjö stiga forskot á Liverpool og Chelsea sem eiga leiki á morgun. Cardiff er í neðri hluta deildarinnar með 13 stig.

Aron Einar Gunnarsson kom ekkert við sögu hjá Cardiff í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×