Enski boltinn

Sissoko skaut Newcastle í fimma sætið | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Newcastle vann sinn fjórða sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar West Brom kíkti í heimsókn. Moussa Sissoko skoraði glæsilegt sigurmark Newcastle í 2-1 sigri.

Leikur liðanna á St. James' Park var fjörlegur en fyrsta markið kom eftir mistök Boas Myhill í markinu. Honum gekk illa að glíma við fyrirgjöf og Yoan Gouffran skallaði boltann í opið netið. Heimamenn 1-0 yfir í hálfleik.

Chris Brunt jafnaði metin snemma í síðari hálfleik með frábæru vinstri fótarskoti úr þröngu færi. Það var hins vegar Sissoko sem tryggði lærisveinum Alan Pardew stigin þrjú á 57. mínútu. Hann fékk þá boltann vel utan teigs og hamraði hann upp í hornið með frábæru skoti.

Newcastle komst með sigrinum í 5. sæti með 23 stig. West Brom hefur 15 stig rétt fyrir neðan miðja deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×