Langskot Tottenham dugðu ekki til sigurs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2013 00:01
Englandsmeistarar Manchester United jöfnuðu í tvígang í heimsókn sinni til Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikurinn á White Hart Lane var stórskemmtilegur en það var bakvörðurinn Kyle Walker sem kom heimamönnum á bragðið. Í fjarveru Gylfa Þórs Sigurðssonar og Christian Eriksen fékk Walker að taka aukaspyrnu utan teigs. Boltinn smaug undir varnarvegginn og í markið. Walker var þó ekki lengi í hetjuhlutverkinu. Skömmu síðar sendi Antonio Valencia boltann fyrir markið frá hægri. Walker misreiknaði boltann það illa að úr varð sending á Wayne Rooney sem stóð opinn á markteig. Augnabliki síðar lá boltinn í netinu og staðan orðin 1-1. Þannig stóðu leikar í hálfleik. Jafnræði var með liðunum framan af síðari hálfleik þar til Brasilíumaðurinn Sandro fékk boltann um 30 metra frá marki United. Miðjumaðurinn var ekkert að skafa af því, lét vaða og boltinn söng efst í markhorninu. Markið má sjá í spilaranum að ofan. Augnabliki síðar elti Danny Welbeck sendingu inn á vítateig Spurs. Hugo Lloris kom hlaupandi út á móti, braut á þeim enska og vítaspyrna dæmd. Rooney skoraði sjálfur úr spyrnunni og jafnaði metin í 2-2. Bæði lið fengu þokkaleg færi til að tryggja sér sigur í leiknum en allt kom fyrir ekki. Jafntefli niðurstaðan. United er áfram í 8. sæti deildarinnar með 22 stig og Tottenham í 9. sæti með 21 stig.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Man. United - Newcastle | Án Bruno en geta komist upp fyrir Liverpool Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Man. United - Newcastle | Án Bruno en geta komist upp fyrir Liverpool Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Sjá meira