Enski boltinn

Miðverðirnir hetjur Chelsea | Öll mörkin

Chelsea er komið í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir góðan sigur á Southampton 3-1 á Stamford Bridge í dag. Southampton var 1-0 yfir í hálfleik en Jose Mourinho sendi Demba Ba inn fyrir Michael Essien í hálfleik og það skipti sköpum.

Essien lagði upp fyrsta mark leiksins en ekki fyrir rétt lið. Essien sendi boltann inn fyrir vörn Chelsea og Jay Rodriguez skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins 13 sekúndna leik.

Staðan í hálfleik var 1-0 Southampton í vil en innkoma Demba Ba hleypti meira lífi í leik Chelsea auk þess sem Essien átti arfa slakan leik í fyrri hálfleik.

Eitthvað virðist Jose Mourinho hafa sagt við sína menn í hálfleik því þeir mættu mun beittari til leiks í síðari hálfleik. Gary Cahill jafnaði metin strax á 55. mínútu og sjö mínútum síðar kom John Terry Chelsea yfir.

Southampton var aldrei líklegt til að jafna metin og var það fyllilega verðskuldað þegar Demba Ba gulltryggði sigurinn á 90. mínútu.

Chelsea er með 27 stig í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Arsenal. Southampton er í 7. sæti með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×