Enski boltinn

Pulis ráðinn stjóri Crystal Palace

Íslandsvinurinn Tony Pulis er mættur aftur í enska boltann. Crystal Palace staðfesti í dag að félagið hefði gert tveggja og hálfs árs samning við Pulis.

Pulis hefur verið atvinnulaus síðan í maí er hann hætti hjá Stoke City. Hann tekur við starfinu hjá Palace af Ian Holloway sem var rekinn.

Nýi stjórinn mun þó ekki verða á hliðarlínunni gegn Hull um helgina. Hann verður aftur á móti mættur er Palace leikur gegn Norwich eftir viku.

Pulis á erfitt verk fyrir höndum enda er Palace á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Pulis hefur verið stjóri í 21 ár og lið undir hans stjórn hafa aldrei fallið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×