Enski boltinn

Hvað var Boruc að hugsa? | Myndband

Eitt skrautlegasta mark sem hefur sést í enska boltanum lengi kom í leik Arsenal og Southampton í dag.

Markvörður Southampton, Artur Boruc, virðist hafa haldið að hann væri orðinn Lionel Messi er hann reyndi ítrekað að sóla Olivier Giroud, framherja Arsenal.

Þessir tilburðir enduðu með ósköpum þegar Giroud tók af honum boltann og renndi honum í tómt markið.

Boruc fékk fjölda færa á því að sparka boltanum í burtu en áfram hélt hann að reyna að sóla. Þetta mark var með ólíkindum og það má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×