Enski boltinn

Vinnie Jones greindur með krabbamein

Vinnie Jones í leik með Wimbledon.
Vinnie Jones í leik með Wimbledon.
Fyrrum knattspyrnustjarnan og núverandi Hollywood-leikarinn, Vinnie Jones, hefur verið greindur með húðkrabbamein.

Þegar er búið að fjarlægja nokkur æxli úr líkama Jones en baráttunni er alls ekki lokið.

"Þegar ég fékk fréttirnar var að það fyrsta sem ég hugsaði hvað ég ætti langan tíma eftir. Þetta hefur verið mjög erfitt en ég ætla að berjast með kjafti og klóm," sagði Jones.

Hann telur að ástæðan fyrir því að hann fékk krabbamein sé sólin í LA þar sem hann hefur verið með annan fótinn síðan hann hætti í boltanum.

"Knattspyrnumenn setja aldrei á sig sólarvörn en allir knattspyrnumenn ættu að nota vörn."

Eiginkona Jones, Tanya, hefur einnig verið að glíma við húðkrabbamein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×