Enski boltinn

Tvö glæsimörk Long dugðu ekki | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
West Brom komst í 2-0 forystu gegn Aston Villa í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gestirnir frá Aston Villa komu þó til baka í síðari hálfleik og náðu 2-2 jafntefli. Mörkin í leiknum má sjá hér fyrir ofan.

Heimamenn fengu draumabyrjun þökk sé tveimur flottum mörkum frá Shane Long á fyrstu ellefu mínútum leiksins.

Long náði að leggja boltann glæsilega fyrir sig í fyrra markinu og afgreiða knöttinn í netið með frábæru skoti. Stuttu síðar komst hann inn í skelfilega sendingu Leandro Bacuna, varnarmanns Aston Villa, og skoraði fram hjá Brad Guzan, markverði Villa.

Aston Villa gerði þrefalda skiptingu á 57. mínútu og það bar árangur. Tíu mínútum síðar vippaði Karim El Ahmadi yfir Boaz Myhill, markvörð West Brom og minnkaði þar með muninn.

Ashley Westwood var svo hetja gestanna er hann skoraði jöfnunarmark Aston Villa um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Hann komst inn í slaka hreinsun Goran Popov og skoraði með föstu skoti utan vítateigs.

Þessi grannlið eru því enn jöfn að stigum um miðja deild. Þau eru með fimmtán stig, rétt eins og Swansea, í 10.-12. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×