Enski boltinn

Rauða spjaldið hans Wes Brown dregið til baka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wes Brown gengur súr af velli.
Wes Brown gengur súr af velli. Mynd/AFP
Wes Brown þarf ekki að taka út leikbann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik Sunderland á móti Stoke City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Kevin Friend gaf Wes Brown beint rautt spjald þrátt fyrir að hann hafi bara tekið boltann og ekki komið við Charlie Adam.

Gus Poyet, knattspyrnustjóri Sunderland, var alveg trítilóður á hliðarlínunni þegar Brown fékk spjaldið eins og sjá má hér.



„Ég vil nota tækifærið og þakka aganefndinni fyrir að taka þetta mál fyrir. Auðvitað erum við himinlifandi með þessa niðurstöðu sem er það sanngjarnasta í stöðunni," sagði Gus Poyet.

Wes Brown hefði farið í þriggja bann ef rauða spjaldið hefði staðið en þess í stað mun Kevin Friend dómari ekki fá að dæma í næstu tveimur umferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×