Enski boltinn

Mike Phelan segist hafa verið hinn rétti stjóri United síðustu árin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sir Alex Ferguson og Mike Phelan.
Sir Alex Ferguson og Mike Phelan. Mynd/NordicPhotos/Getty
Mike Phelan, fyrrum aðstoðarknattspyrnustjóri Sir Alex Ferguson, heldur því fram í viðtali við Daily Mail að hann hafi í raun verið hinn rétti stjóri Manchester United síðustu árin.

Mike Phelan tók við af Carlos Queiroz árið 2008 sem aðstoðarmaður Ferguson og hafði sjö ár á undan verið aðalliðsþjálfari Manchester United.

Phelan varð einnig enskur meistari og enskur bikarmeistari hjá Manchester United þegar hann lék með liðinu.

Mike Phelan hefur verið atvinnulaus síðan að David Moyes tók við af Sir Alex Ferguson á Old Trafford. Phelan vill greinilega vekja athygli á því starfi sem hann vann við hlið Ferguson en saman unnu þeir þrjá meistaratitla á þessum fimm árum.

„Ég stefni á það að verða knattspyrnustjóri. Það er næsta skref hjá mér og það er starfið sem ég hef gegnt undanfarin fimm ár þótt það hafi verið undir titlinum aðstoðarknattspyrnustjóri,“ segir Phelan. 

„Ferguson var yfir öllu og það efast enginn um það en hann er fyrstur til að viðurkenna að fullt af öðru fólki átti þátt í árangri hans með liðið," sagði Mike Phelan við Daily Mail.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×