Enski boltinn

Villas-Boas segist njóta trausts forráðamanna Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, segir ekkert hæft í þeim fregnum að starf hans hjá félaginu sé í hættu.

Tottenham tapaði fyrir Manchester City, 6-0, í ensku úrvalsdeildinni um helgina og er í níunda sæti deildarinnar, átta stigum á eftir erkifjendunum og toppliði Arsenal.

„Ég nýt stuðnings bæði stjórnarmanna félagsins sem og leikmannanna,“ sagði Villas-Boas við enska fjölmiðla í kvöld en liðið er nú að undirbúa sig fyrir leik gegn norska liðinu Tromsö í Evrópudeild UEFA.

„Stjórnarmenn eru á sama máli og ég. Það fór allt úrskeðis um helgina og við vonumst til að liðið breðgist rétt við í framtíðinni.“

„Ég ræddi við stjórnina fyrir 2-3 dögum síðan og þetta var venjulegur fundur. Við ræddum lítið um leikinn sjálfan.“

Hann hefur ekki áhyggjur af því að stjórnarformaðurinn Daniel Levy hafi ekki lýst yfir stuðningi við Villas-Boas í fjölmiðlum.

„Það er ekki hans stíll og bið ég hann heldur ekki um slíka hluti. Ég er orðinn ónæmur fyrir gagnrýninni og ég tek ekki jafn mikið mark á henni og ég gerði áður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×