Enski boltinn

Hagræðingin hverfur kannski aldrei

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, telur líklegt að það verði aldrei hægt að útrýma hagræðingu úrslitum leikja í knattspyrnu.

Mikið er fjallað um þessi mál í enskum fjölmiðlum þessa dagana eftir að tveir menn voru handteknir fyrir að hafa áhrif á úrslit leikja í enskri knattspyrnu í gróðaskyni.

„Er hægt að útrýma þessu algjörlega? Ég er ekki viss,“ sagði Wenger á blaðamannafundi í dag en topplið Arsenal mætir Cardiff í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

„En við getum svo sannarlega gert okkar besta til að uppræta vandamálið. Það er algjörlega hræðilegt að geta ekki treyst öðrum til að standa heiðarlega að íþróttinni.“

„Það hefur verið reynt að fræða leikmenn um málefnið og þeir eru hvattir til að tilkynna allt misjafnt. En freistingin er og verður alltaf til staðar og fólk mun reyna að notfæra sér hana.“

„Það er þó til eftirlitskerfi og við hjá félögunum verðum að vinna náið með yfirvöldum til að standa vörð um hagsmuni knattspyrnunnar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×