Enski boltinn

Sjáið laugardagsmörkin og umdeilda vítið hjá Chelsea

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær og nú er hægt að sjá allt það merkilegasta sem gerðist í leikjunum inn á sjónvarpsvef Vísis.

Það var fullt af frétta úr leikjum gærdagsins og því upplagt fyrir áhugasama að fá flott yfirlit yfir atburði gærdagsins en í dag klárast ellefta umferðin síðan með fjórum leikjum.

Luis Suarez hélt áfram að raða inn mörkum fyrir Liverpool og umdeild vítaspyrna í uppbótartíma bjargaði Jose Mourinho frá því að tapa sínum fyrsta heimaleik sem stjóri Chelsea.

Aston Villa tókst loksins að skora eftir fjóra markalausa leiki og frábært gengi Southampton heldur áfram.

Til þess að sjá öll mörk laugardagsins á einu bretti þarf bara að smella á myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×