Enski boltinn

Zabaleta óttast að titillinn sé að renna þeim úr greipum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pablo Zabaleta
Pablo Zabaleta nordicphotos/getty
Pablo Zabaleta, leikmaður Manchester City, vill meina að liðið þurfi að bæta sig umtalsvert til að eiga möguleika á enska titlinum undir lok tímabilsins en liðið tapaði óvænt fyrir Sunderland í gær 1-0.

Manchester City hefur tapað fjórum af sex útileikjum sínum í ensku deildinni á tímabilinu og er liðið í áttunda sæti deildarinnar með 19 stig.

„Það mun reynast okkur gríðarlega erfitt að hampa titlinum undir lokin ef við náum ekki að klára leiki eins og um helgina,“ sagði Zabaleta.

„Þegar maður tapar svona leik þá vill maður helst komst sem allra fyrst aftur út á völlinn til að bæta upp fyrir þessi úrslit. Núna er aftur á móti landsleikjahlé framundan en næsti leikur okkar í deildinni er gegn Tottenham , sem verður gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur. Við verðum að ná í öll stigin þrjú.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×