Enski boltinn

Nolan biður stuðningsmenn West Ham afsökunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kevin Nolan í leik með West Ham
Kevin Nolan í leik með West Ham nordicphotos/getty
Kevin Nolan, fyrirliði West Ham United, hefur beðið stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir tapið gegn Norwich City um helgina 3-1.

Liðið hefur aðeins unnið einn leik frá sigurleiknum í fyrstu umferð og hefur West Ham fallið niður í 16. sæti deildarinnar.

„Við þörfnumst stuðningsmanna okkar, þeir hafa verið magnaðir á tímabilinu,“ sagði Nolan.

„Við biðjum alla okkar stuðningsmenn innilegrar aföskunar og ég stend fastur á þeirri skoðun að liðið verður í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.“

Næsti leikur liðsins er gegn Chelsea í deildinni eftir landsleikjahlé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×