Enski boltinn

Giroud er farinn að þreytast

Giroud fagnar marki í vetur.
Giroud fagnar marki í vetur.
Það hefur mikið mætt á framherja Arsenal, Olivier Giroud, í vetur enda er hann eini alvöru framherji liðsins.

Arsenal tókst ekki að styrkja framlínuna í sumar og eini maðurinn sem getur leyst hann af er Daninn Nicklas Bendtner en hann hefur ekki verið að gera merkilega hluti upp á síðkastið.

Giroud hefur staðið vel undir væntingum og er búinn að skora átta mörk það sem af er vetri. Liðsfélagi hans, Laurent Koscielny, segir að álagið sé farið að taka sinn toll á honum.

"Hann er vissulega ekki að skora jafn mikið og í upphafi leiktíðar en hann er samt að leggja upp eins og gegn Dortmund. Hann er samt að spila alla leiki og fær enga hvíld. Það er því ekkert skrítið að hann sé orðinn svolítið þreyttur," sagði Koscielny.

"Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir liðið. Alltaf sterkur og skilar sínu. Hann leggur þunga sinn á varnir andstæðinganna og leggur alltaf mikla vinnu í sinn leik."

Arsenal mun klárlega bæta við sig framherja í janúar og félagið er meðal annars sagt hafa áhuga á Javier Hernandez, framherja Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×