Enski boltinn

Það hata allir bestu liðin

Jones og Wayne Rooney.
Jones og Wayne Rooney.
Phil Jones, varnarmaður Man. Utd, segir að það hafi hlakkað í ansi mörgum eftir brösuga byrjun Man. Utd á tímabilinu í enska boltanum.

"Fólk vill að okkur mistakist þar sem við höfum unnið deildina svo oft. Það hata allir bestu liðin. Það er ekkert flóknara en það," sagði Jones.

United vann aðeins þrjá af fyrstu átta leikjum sínum í deildinni en sigurinn gegn Arsenal um síðustu helgi kom liðinu upp í fimmta sæti. United er aðeins fimm stigum á eftir toppliði Arsenal.

"Við njótum þess að fólk hati okkur og vilji að okkur gangi illa. Við þrífumst á prófunum sem við fáum um hverja helgi."

United er búið að vinna síðustu þrjá leiki sína í deildinni og hefur ekki tapað í síðustu níu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×