Mourinho: Ég gerði ekkert sérstakt fyrir Torres Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2013 11:15 Fernando Torres. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, ætlar ekki að taka heiðurinn af því að spænski framherjinn Fernando Torres er farinn að líkjast þeim leikmanni sem Chelsea borgaði 50 milljón punda fyrir á sínum tíma. Fernando Torres er búinn að skora þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum sínum og var frábær í 2-1 sigri á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Torres hefur oft gengið illa að halda sæti sínu í Chelsea-liðinu síðustu misseri og það var einnig þannig til að byrja með í vetur. Nú lítur aftur á móti út fyrir að hann sé kominn á flug. „Hann er bara að gera sitt besta, hvort sem hann er maður leiksins eins og á móti Manchester City eða þegar hann er ekki maður leiksins, á bekknum eða kemur inná sem varamaður," sagði Jose Mourinho við Guardian. „Ég endurtek að ég gerði ekkert sérstakt fyrir Torres. Ég geri bara það sem ég er vanur sem er að reyna að ná því besta út úr mínum leikmönnum en á venjulegan hátt. Það undir honum sjálfum komið að finna sína innri hvöt og leggja mikið á sig á hverjum degi," sagði Mourinho. „Ég vil að Ferando nái stöðugleika og að hann hætti að hafa of miklar áhyggjur af því að þurfa að sanna sig. Hvort sem hann skorar eða ekki þá vil ég bara að hann vinni fyrir liðið," sagði Mourinho. Fernando Torres skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu á móti Manhester City í síðasta leik og lagði þá einnig upp mark. Chelsea mætir Newcastle á útivelli í hádegisleiknum í dag. Torres skoraði síðasta í tveimur deildarleikjum í röð í október 2012.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira