Enski boltinn

Özil: Fótbolti á formúlu eitt hraða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mesut Özil var sáttur eftir 2-0 sigur Arsenal á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær en Arsenal náði fyrir vikið fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Özil var frábær á miðju Arsenal og átti stoðsendinguna á Aaron Ramsey í seinna marki liðsins. Hann fór á twitter-síðu sína eftir leik og hitti í mark með greiningu sína á leiknum.

"Þetta var fótbolti á formúlu eitt hraða. Það er yndilegt að vera Skytta (Gunner). Takk allir," skrifaði Mesut Özil.

Mesut Özil hefur spilað sjö leiki í ensku úrvalsdeildinni og er með 2 mörk og 5 stoðsendingar í þeim. Arsenal hefur náð í 19 stig af 21 mögulegu í þessum sjö leikjum.

Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×