Enski boltinn

Messan: Auðvitað áttu menn að hafa vit fyrir Lloris

Stefán Árni Pálsson skrifar
Enska knattspyrnuliðið Tottenham hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að hafa leyft Hugo Lloris að leika áfram eftir samstuð sem hann varð fyrir við Lukaku í leik gegn Everton en markvörðurinn missti meðvitund.

Þegar að Lloris rankaði aftur við sér neitaði hann að fara af velli og spilaði út leikinn en um stundarfjórðungur var eftir af leiknum þegar atvikið átti sér stað.

Guðmundur Benediktsson ræddi atvikið við þá Hjörvari Hafliðason og Bjarna Guðjónsson í Messunni í gær og fóru þeir félagar mikinn.

Hægt er að sjá alla umræðuna með því að smella hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×