Enski boltinn

Allardyce vill fá Alfreð í janúarglugganum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð Finnbogason í leik með Heerenveen.
Alfreð Finnbogason í leik með Heerenveen. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri West Ham United er sagður vera undirbúa tilboð í framherjann íslenska Alfreð Finnbogason í janúar.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Tribalfootball.com.

Alfreð hefur verið hreint út sagt óstöðvandi með hollenska liðinu Heerenveen á tímabilinu og þykir mjög eftirsóttur í Evrópu.

Allardyce ætlar sér að finna frambærilegan framherja í janúarglugganum og er Alfreð framarlega á óskalistanum.

Alfreð tekur þátt í stærsta landsleik Íslandssögunar hjá karlalandsliðinu þegar liðið leikur við Króatíu í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 15. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×