Óvíst um öryggi Íslendinga á Filippseyjum Jakob Bjarnar skrifar 8. nóvember 2013 12:34 Rúnar Þór Jónsson segir ástandið í Filippseyjum skelfilegt; öllum opinberum stofnunum í Malilla hefur verið lokað.
Sambandslaust hefur verið í morgun við eynna Biliran, þar sem Íslendingar sem starfa hjá Jarðborunum, eru staðsettir -- átta talsins. Veður er þó ekki verst þar og gengið hafði verið tryggilega frá öllu þannig að Rúnar Þór Jónsson yfirverkefnisstjóri hjá Jarðborunum, sem staddur er í Manila, telur þeim óhætt. Haiyan er fimmta stigs fellibylur, eða ofurfellibylur og sá öflugasti sem myndast hefur í ár. Vindstyrkurinn er samkvæmt bandarísku veðurfræðistofnunarinnar 87 metrar á sekúndu, þá er lægðamiðjan náði landi á eynni Samar sem er austast í eyjaklasanum. Þó Rúnar Þór hafi ekki náð sambandi við sína menn á Biliran, nú í morgun hefur hann ekki þungar áhyggjur af þeim. „Stormurinn þar sem hann er mestur fyrr í dag er í 120 kílómetra fjarlægð frá því þar sem við erum með starfsemi. Var fjögurra stiga en er kominn niður í þriggja stiga. En, þar sem við erum, í Biliran, er lélegt símasamband. Við höfum ekkert náð tali af neinum á eyjunni í dag. Það er allt úti, símalínur, hvort sem er landlína eða GSM. Það skiptir í raun engu máli hver er að reyna að hringja. Við erum í sambandi við þingmanninn sem er fyrir Biliran og hann hefur ekki náð í gegn heldur. Við vitum bara að veðrið er ekki eins slæmt þarna sem starfsmenn Jarðborana eru að vinna og þar sem það hefur verið verst. Svo er starfsemin ofarlega, vel yfir sjávarmáli, þannig að ef flæðir þá ætti það ekki að bitna á okkar mönnum.“ Fram hefur komið í fréttum að í það minnsta fjórir hafa látist vegna stormsins. Að sögn Rúnars höfðu menn tveggja daga fyrirvara á að undirbúa sig og ganga frá öllu. Stafsmenn Jarðborana á Biliran eru átta talsins. Eyjan er lítil og staðsett í fyrir miðju eyjaklasans. En, þrír eru staðsettir á Manila. En, ástandið almennt á Filippseyjum? „Það er náttúrlega ekki gott. Öllum opinberum stofnunum er lokað í Manila í dag af ótta við að stormurinn nái hingað. Forsetinn ávarpaði þjóðina í gær og varaði við þessu. Þær fréttir sem við fáum hins vegar frá Tacloban, þar sem við þurfum að fljúga í gegn, er að flugvöllurinn þar er gjörónýtur. Þar er miðja fellibylsins. Það er sem sagt, í 120 kílómetra fjarlægð frá okkur, en þó ekki nægjanlega mikilli til að hægt sé að teljast öruggt. Þessi stormur hefur náttúrlega haft áhrif á 25 milljónir manna, sem er um það bil fjórðungur þjóðarinnar, þannig að þetta er náttúrlega alveg gríðarlegt,“ segir Rúnar Þór Jónsson hjá Jarðborunum.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira