Southampton upp í þriðja sætið - úrslit dagsins í enska boltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 14:45 Mynd/NordicPhotos/Getty
Southampton ætlar ekki að gefa neitt eftir í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á Hull í ensku úrvalsdeildinni í dag. Southampton komst upp í þriðja sætið með þessum sigri þar sem að Chelsea tapaði stigum á heimavelli á móti WBA.Morgan Schneiderlin, Rickie Lambert og Adam Lallana komu Southamton í 3-0 í fyrri hálfleiknum og í þeim seinni innsiglaði Steven Davis sigurinn eftir að Yannick Sagbo hafði minnkað muninn. Southampton hefur unnið 6 af 11 leikjum sínum og aðeins tapað einu sinni. Þetta var líka bara fimmta markið sem liðið fær á sig. Liverpool er komið upp í annað sætið eftir 4-0 stórsigur á Fulham á Anfield en sigurinn hefði getað verið miklu stærri. Úrúgvæmaðurinn Luis Suárez skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í þessum leik og hefur þar með skorað átta mörk í sex deildarleikjum á leiktíðinni. Steven Gerrard átti frábæran leik og lagði upp þrjú marka Liverpool-liðsins.Chelsea og West Bromwich Albion gerðu 2-2 jafntefli á Brúnni í dag en gestirnir voru að vonum svekktir í leikslok enda hársbreidd frá sögulegum sigri. Afar umdeild vítaspyrna í uppbótartíma kom í veg fyrir að West Bromwich Albion yrði fyrsta liðið til að vinna Chelsea á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í tíð Jose Mourinho.Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City þurftu að sætta sig við 2-0 tap á móti Aston Villa á Villa Park. Aston Villa var ekki búið að skora í fjórum síðustu deildarleikjum sínum og hafði aðeins náði í samtals tvö stig í október og nóvember. Þetta voru því langþráð mörk og stig hjá Villa-mönnum í dag. Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliðinu hjá Cardiff en var tekin af velli á 65. mínútu þegar staðan var enn markalaus.Crystal Palace og Everton gerðu markalaust jafntefli í London en Palace-menn náðu þarna að enda sjö leikja taphrinu sína.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Aston Villa - Cardiff 2-0 1-0 Leandro Bacuna (76.), 2-0 Libor Kozák (84.)Chelsea - West Bromwich 2-2 1-0 Samuel Eto'o (45.), 1-1 Shane Long (61.), 1-2 Stéphane Sessègnon (68.), 2-2 Eden Hazard, víti (90.+6).Crystal Palace - Everton 0-0Liverpool - Fulham 4-0 1-0 Sjálfsmark (23.), 2-0 Martin Škrtel (26.), 3-0 Luis Suárez (36.), 4-0 Luis Suárez (54.)Southampton - Hull 4-1 1-0 Morgan Schneiderlin (16.), 2-0 Rickie Lambert, víti (30.), 3-0 Adam Lallana (37.), 3-1 Yannick Sagbo (55.), 4-1 Steven Davis (89.)Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ronaldo tárvotur eftir leik: „Við unnum fyrir Diogo“ Fótbolti Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Íslenski boltinn Bandarísk borg setur á útgöngubann eftir leik Grænhöfðaeyja Fótbolti Átti Amin að sjá rautt? Íslenski boltinn Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Fótbolti Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Fótbolti Haaland útskýrir kossinn Fótbolti Búinn að hlaupa allar götur í Reykjavík Sport „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Körfubolti Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira