Enski boltinn

Kári Árna og félagar áfram í enska bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kári Árnason.
Kári Árnason. Mynd/NordicPhotos/Getty
Kári Árnason spilaði allan leikinn þegar Rotherham United sló Bradford City út úr ensku bikarkeppninni í dag en bæði liðin spila í ensku C-deildinni. Rotherham United var á heimavelli og vann leikinn 3-0.

Kieran Agard skoraði fyrsta mark Rotherham strax á 13. mínútu leiksins og Alex Revell og svo Kieran Agard aftur bættu við mörkum í seinni hálfleiknum.  

Kári spilaði allar 90 mínúturnar og fékk gult spjald fyrir brot í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Næst á dagskrá hjá Kára er að hjálpa íslenska landsliðinu að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu en íslenska landsliðið kemur saman eftir helgi.

Björn Bergmann Sigurðarson var allan tímann á varamannabekknum þegar Wolves gerði 1-1 jafntefli á útivelli á móti Oldham Athletic en bæði liðin eru í ensku C-deildinni. Þau þurfa að spila á nýju en þá á heimavelli Wolves.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×