Enski boltinn

Mourinho: Þetta var víti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eden Hazard skorar úr vítinu umdeilda.
Eden Hazard skorar úr vítinu umdeilda. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var hársbreidd frá því að tapa sínum fyrsta deildarleik á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag en Chelsea-menn tryggðu sér 2-2 jafntefli á móti West Bromwich Albion úr vítaspyrnu sem  Andre Marriner dæmdi á fjórðu mínútu í uppbótartíma.

„Þetta var víti. Ég er búinn að sjá þetta atvik tvisvar eða þrisvar og þetta var pottþétt víti alveg eins og það átti að vera aukaspyrna á West Brom þegar þeir komust í 2-1," sagði Jose Mourinho eftir leikinn en hann hefur nú stýrt Chelsea í 66 heimaleikjum í röð án þess að tapa.

„Ég hef því líka ástæðu til að vera óánægður með dómarann. Hann er að mínu mati frábær dómari og einn af þeim bestu í evrópska fótboltanum en þetta var bara slæmur dagur hjá honum," sagði Mourinho.

„Það var mikil dramatík í dag enda var heimaliðið að tapa. Við svöruðum því vel að lenda undir og lögðu allt í sölurnar til að jafna. Þetta snérist jafnvel meira um tilfinningar en tækni og taktík," sagði Mourinho.

„Við klikkuðum á færum í lokin en fengum víti sem er alltaf erfitt að sætta sig við fyrir liðið sem er yfir. Dómarinn gerði mistök í leiknum en það voru ekki mistök að dæma vítið," sagði Jose Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×