Enski boltinn

Stór dagur í enska boltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ellefta umferð ensku úrvalsdeildarinnar klárast í dag með fjórum leikjum og stórleikurinn er án vafa leikur Manchester United og Arsenal á Old Trafford.

Dagurinn byrjar samt á leik Gylfa Þórs Sigurðssonar og félaga í Tottenham sem taka á móti Newcastle á White Hart Lane. Newcastle vann eftirminnilegan sigur á Chelsea um síðustu helgi.

Á sjónvarpsvef Vísis má finna létta upphitun fyrir leiki dagsins og að sjálfsögðu er sviðsljósið á leiknum á Old Trafford þar sem mætast Englandsmeistararnir og topplið Arsenal.

Arsenal hefur þegar klárað tvo af þremur stórleikjum sínum á síðustu átta dögum og margir telja samt að mjög mörgum spurningum verði svarað í Leikhúsi draumanna í dag.

Það er hægt að sjá þetta myndband með því að smella hér fyrir ofan en hér fyrir neðan má sjá leiki dagsins og á hvaða sjónvarpsrásum þeir verða sýndir.

Leikir í ensku úrvalsdeildinni 10. nóvember 2013:

Klukkan 12.00

Tottenham - Newcastle        Stöð 2 Sport 2

Klukkan 14.05

Sunderland - Manchester City        Stöð 2 Sport 2

Klukkan 16.10

Manchester United - Arsenal        Stöð 2 Sport 2

Swansea - Stoke        Stöð 2 Sport 3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×