Enski boltinn

Mike Myers var boðið í veislu á Anfield í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gamanleikarinn Mike Myers, þekktur fyrir hlutverk sín í myndum eins og Wayne's World og Austin Powers, var meðal áhorfenda á leik Liverpool og Fulham í ensku úrvalsdeildinni.

Mike Myers er harður stuðningsmaður Liverpool og það er óhætt að segja að hans menn hafi boðið honum upp á sýningu í gær.

Liverpool yfirspilaði Fulham og gat skorað miklu meira en fjögur mörk. Mike Myers brosti örugglega allan hringinn úr heiðursstúkunni á meðan markaveislunni stóð. Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum hér fyrir ofan.

„Ég trúi því ekki að ég sé hérna. Ég er vanalega ræðinn en er bara algjörlega orðlaus núna. Heimili foreldra minna var tileinkað Liverpool-liðinu. Ég elska fólkið hér og ég lít á þetta sem heimili mitt," sagði Mike Myers við BBV.

„Ég gat ekki sofið í nótt því ég var svo spenntur. Ég tel að Liverpool eigi góða möguleika að ná einu af fjórum efstu sætunum. Þegar Sturridge og Suarez fá boltann þá getur allt gerst. Liverpool er farið að spila gamla Liverpool-boltann aftur," sagði Myers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×