Enski boltinn

Coleman sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Crystal Palace

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chris Colemann
Chris Colemann nordicphotos/getty
Chris Coleman, landsliðsþjálfari Wales, er samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla í viðræðum við enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace um að taka við liðinu.

Ian Holloway hætti á dögunum með liðið og enn hefur ekki arftaki hans verið ráðinn.

Samningur Coleman við velska knattspyrnusambandið rennur út í næsta mánuði og því gæti hann hæglega tekið við Palace.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×